Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana af lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.