Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 16 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 232
Annað
Fyrirspurn
Björn Sigurðsson sækir 12.06.09 um að breyta áður samþykktum teikningum. Gaflar steyptir í fulla hæð samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 11.06.09. Nýjar teikningar lagðar inn 09.07.09. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 19.08.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð telur ekki unnt að verða við erindinu að svo stöddu, þar sem ekki er fyrir hendi frárennsli á svæðinu. Skipulags- og byggingarráð felur skipulagssviði að vinna úttekt á vatns- og frárennslismálum á svæðinu og gera tillögu um aðgerðir.