Skipulags- og byggingarráð gerir kröfu um að byggingarstjóri verði settur á húsið innan tveggja vikna og boði þá þegar til stöðuúttektar. Einnig gerir skipulags- og byggingarráð þá kröfu að eftirlitsmanni skipulags- og byggingarsviðs verði tafarlaust veittur aðgangur til að sannreyna hvort búseta sé í húsinu. Verði ekki brugðist við hvoru tveggja innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.