Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 16 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 231
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju mál varðandi ólöglegar framkvæmdir við húsið og ólöglega búsetu í húsinu. Komið hefur í ljós að ekki hefur verið brugðist við þessu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir 08.04.2009 tillögu til skipulags- og byggingarráðs að ítrekuð verði samþykkt til nýrra eigenda um að beitt verði dagssektum í samræmi við VI kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð beindi því 12.05.2009 til bæjarlögmanns að nýjum eigendum verði tilkynnt þetta og beindi því jafnframt til bæjarstjórnar að ítrekuð yrði samþykkt til nýrra eigenda um að beitt verði dagssektum í samræmi við VI kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekaði 19.05.2009 til nýrra eigenda Hvaleyrarbrautar 22 samþykkt sína frá dags. 29.04.2008 að beitt verði dagssektum í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 vegna ólöglegra framkvæmda við húsið og ólöglegrar búsetu. Bæjarstjórn gaf núverandi eigendum tvær vikur til að tjá sig um málið eða gera við það athugasemdir. Ekki hafa borist svör við erindinu. Lagt fram bréf slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins til Hófsness ehf dags. 22.07.2009 varðandi lokun hússins vegna ágalla á eldvörnum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir vegna ólöglegra framkvæmda og búsetu í húsinu, kr. 50.000/dag, verði innheimtar af nýjum eigendum frá og með 1. september 2009, hafi búsetu ekki verið lokið fyrir þann tíma og réttum reyndarteikningum skilað til byggingarfulltrúa."

Síðasta markaðsverð
21.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 30 m² · 04.06.2021
Kaupskrá 24 eignir
21.000.000 kr. 04.06.2021
Atvinnuhúsnæði · 30 m² · bygg. 1952 · HMS
17.000.000 kr. 02.03.2021
Atvinnuhúsnæði · 77 m² · bygg. 1952 · HMS
28.500.000 kr. 12.03.2020
Atvinnuhúsnæði · 159 m² · bygg. 1952 · HMS
9.000.000 kr. 20.04.2018
Atvinnuhúsnæði · 79 m² · bygg. 1952 · HMS
21.000.000 kr. 04.12.2017
Atvinnuhúsnæði · 117 m² · bygg. 1952 · HMS
… og 19 eignir til viðbótar