Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 72
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 60. fundi skipulagsnefndar frá 15. apríl sl. liður 5. Litla Sandvík; Deiliskipulagstillaga.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags tekur til hluta úr landi Litlu Sandvíkur, landi 1. (L211951), sem staðsett er í dreifbýli í Sveitafélaginu Árborg. Markmið skipulagsins er að gera ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu og smáhýsa ásamt nauðsynlegum innviðum. Skipulagssvæðið nær til um 48.000 m², sem er um þriðjungur af heildarstærð jarðarinnar.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum auglýsingu á deiliskipulagsbreytingu á hluta úr landi Litlu Sandvík, landi 1 á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.