Fyrirspurn
Tillaga frá 60. fundi skipulagsnefndar frá 15. apríl sl. liður 3. Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag.
Lögð er fram uppfærð tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha. lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha. að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.