Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Annað
Fyrirspurn
Lánaskjal Landsbankans til að ljúka fjármögnun framkvæmda við stækkun Svarfhólsvallar í 18 holur.
Í framhaldi af samþykki bæjarráðs leggur bæjarstjóri til við bæjarstjórn að samþykkja lánið.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, B-lista, Ellý Tómasdóttir, D-lista taka til máls.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson leggur fram breytingartillögu um að málinu sé frestað.

Breytingartillagan borin undir atkvæði. Breytingartillagana er felld með 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á lista, en samþykkt með atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista, atkvæðum bæjarfulltrúa S-lista og B-lista.

Tillaga um að samþykkja lán, vegna breytinga á fjármögnun uppbyggingar golfvallarins sem koma í stað áætlaðra greiðslna til Golfklúbbs Selfoss úr eldri samningum.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með samtals 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Bæjarfulltrúar B-lista og bæjarfulltrúar S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista greiddi atkvæði á móti tillögunni.

Fjóla St. Kristinsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð greiðir atkvæði gegn tillögu um lántöku Sveitarfélagsins Árborgar vegna fjármögnunar framkvæmda við Svarfhólsvöll.

Þótt markmið framkvæmdanna séu jákvæð og starfsemi Golfklúbbs Selfoss mikilvæg fyrir samfélagið, eins og aðrar íþróttir þá tel ég að með þessari ákvörðun sé verið að stíga nýtt og fordæmisgefandi skref í fjárhagslegri aðkomu sveitarfélagsins að einstökum félagasamtökum. Hér er sveitarfélagið að taka lán í eigin nafni til að fjármagna og endurfjármagna skuldbindingar íþróttafélags. Slíkt fyrirkomulag hefur að mínu viti ekki verið viðhaft áður með þessum hætti.

Með þessari ákvörðun er hætta á að skapist væntingar hjá öðrum félagasamtökum um sambærilega fyrirgreiðslu. Án skýrrar og formlegrar stefnumótunar um slíka aðkomu getur sveitarfélagið staðið frammi fyrir kröfum um jafnræði sem erfitt verður að víkja frá.

Ég tel að áður en ráðist er í lántöku sem þessa þurfi að fara fram heildstæð umræða um hlutverk sveitarfélagsins í fjármögnun verkefna félagasamtaka, setja skýr viðmið og meta langtímaáhrif þessa á fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins.

Ábyrg fjármálastjórn kallar á varfærni þegar ný og fordæmisgefandi leið er farin. Af þeim sökum get ég ekki stutt tillöguna."