Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Annað
Fyrirspurn
Eftirfarandi er lagt til: Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Selfossveitna hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til láns að höfuðstól allt að kr. 905.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni.
Bæjarstjórnin Árborgar hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til endurfjármögnun á afborgunum eldri lána félagsins hjá Lánasjóðnum og framkvæmda sem fela í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila. Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir þörfum hverju sinni.
Eigna- og veitunefnd samþykkti lántöku fyrir Selfossveitur á fundi sínum 24. febrúar sl.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samtals með 8, þ.e. 5 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og 2 atkvæðum S-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir og D-lista, bæjarfulltrúar B-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.

Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."

Fjóla St. Kristinsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð situr hjá við afgreiðslu þeirra fjögurra lánamála sem hér liggja fyrir þar sem nauðsynlegt er að tryggja greiðsluhæfi sveitarfélagsins og standa við skuldbindingar þess. Hins vegar telur undirrituð að málin sýni skýrt að fjármálastjórn meirihlutans hefur ekki skilað þeim árangri sem haldið hefur verið fram.

Samanlagt sýna þessi mál að áfram er verið að fjármagna afborganir eldri lána að einhverjum hluta með nýrri lántöku og halda úti verulegum yfirdráttarheimildum.

Á sama tíma hefur gjaldtaka á íbúa og atvinnulíf aukist verulega á kjörtímabilinu. Sala byggingarréttar og lands hefur skilað umtalsverðum einskiptistekjum. Aukaálag á útsvar skilaði miklum umframtekjum auk þess sem sveitarfélagið fékk aukið fjármagn frá jöfnunarsjóði vegna málaflokks fatlaðs fólks.

Þrátt fyrir þessa verulegu tekjuaukningu blasir nú við að áfram þarf að fjármagna afborganir með nýrri lántöku og framlengja háar yfirdráttarheimildir. Sú staða vekur eðlilega upp spurningar um forgangsröðun og raunverulegan árangur í rekstri.

Af þeim ástæðum getur undirrituð ekki lýst yfir stuðningi við framlagðar tillögur, þótt hún sitji hjá við afgreiðslu þeirra eins og áður sagði af ábyrgð gagnvart rekstri sveitarfélagsins."


Sigurjón Vídalín GUðmundsson, gerir grein fyrir atkvæði sínu.