Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir tillögum að nafni á nýja brú yfir Ölfusá. Um er að ræða samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Árborgar og Vegagerðarinnar. Áhugasamir geti skilað inn tillögum í gegnum samráðsgáttina „Betri Árborg“. Bæjarráð ásamt fulltrúa Vegagerðarinnar muni síðan fjalla um tillögurnar og leggja til nýtt nafn til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar. Samþykkt