Margrét Blöndal og Hera Fjölnisdóttir koma inn á fundinn og fara yfir dagskrá Vor í Árborg sem fram fer 22.- 26. apríl 2026. Fram kemur að hátíðin í ár sé tileinkuð barnamenningu og í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurlandi. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa og aðra aðila til að taka þátt í hátíðinni. SamþykktMargrét Blöndal og Hera Fjölnisdóttir fara af fundinum kl.8:35