Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Bæjarráð nr. 160
Annað
Fyrirspurn
Minnisblað bæjarstjóra dags. 9. febrúar, ásamt drögum að þjónustusamningi við Golfklúbb Selfoss.
Málinu var frestað 159. fundi.
Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss kemur inn á fundinn.
Svar

Hlynur Geir Hjartarson kemur inn á fundinn og kynnir starfsemi Golfklúbbs Selfoss og svarar fyrirspurnum. Bæjarráð þakkar Hlyni Geir fyrir kynninguna.

Bæjarráð samþykkir þjónustusamninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. Bæjarstjóra er einnig falið að láta undirbúa lánaskjöl vegna fjármögnunar á uppbyggingu golfvallarins og leggja fram til afgreiðslu bæjarstjórnar. Með breytingu á fjármögnun uppbyggingar golfvallarins falla út áætlaðar greiðslur til Golfklúbbs Selfoss úr eldri samningum. Ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir samningnum og lánafyrirkomulagi í fjárhagsáætlun Árborgar 2026.SamþykktHlynur Geir Hjartarson víkur af fundinum kl. 9:45