Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 165
Annað
Fyrirspurn
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Fasteignafélag Árborgar slf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi leikskóla ásamt hjóla og vagnageymslu. Helstu stærðir eru; 1064,2m² og 4.587,0m³. Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 3. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 211781 → skrá.is
Hnitnúmer: 10096505
Deiliskipulag
Suðurbyggð við Nauthól. Svæði A.
Samþykkt 10.05.2006 · Deiliskipulag. Nýtt DSK