Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 165
Annað
Fyrirspurn
Guðmundur Hjaltason hönnuður fyrir hönd Áorka ehf. skilar inn teikningum af skiptingu hús úr 2 verslunarbilum yfir í 3 verslunarbil.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Brunavarna Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 162319 → skrá.is
Hnitnúmer: 10060157