Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 152
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Óðni Árnasyni fyrir fh. Yrkis eigna ehf, dags. 24. nóvember, þar sem óskað er vilyrði fyrir lóð fyrir þjónustustöð fyrir N1. Óskað er eftir heimild fyrir breytingu á aðal- og deiliskipulagi Fossness og Mýrarlands.
Svar

Bæjarráð samþykkir, á grundvelli 9. gr. reglna um úthlutanir lóða, að veita Yrki eignum ehf. vilyrði fyrir óstofnaðri 1-2 ha lóð sem ætluð verði fyrir uppbyggingu verslunar- og þjónustutengdrar starfsemi. Lóðin verði stofnuð úr upprunalandi Fossness, lnr. 161791, skv. fyrirliggjandi tillögu að grófum áformum og forsendum skipulags fyrir lóðina.

Bæjarráð samþykkir að Yrki eignum ehf. sé veitt heimild til að hefja skipulagsvinnu vegna lóðarinnar í samráði við skipulagsfulltrúa. Bæjarráð samþykkir enn fremur að ef til þess kemur að deiliskipulag verði samþykkt skuli Yrki eignir ehf. greiða, staðfestingargjald gegn vilyrði þessu, sem samsvarar lágmarks byggingarréttargjaldi skv. gjaldskrárleið 2 í samþykktum um gatnagerðargjald og byggingarréttargjald Sveitarfélagsins Árborgar. Samþykkt