Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 152
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 53. fundi skipulagsnefndar frá 26. nóvember sl. liður 7. Kirkjugarður á Selfossi - framtíðarstaðsetning.
Lögð er fram til kynningar skýrsla vegna greiningar á jarðvegsaðstæðum á Laugardælavelli við Glymskóga - Laugardælur land, L206116. Almennar umræðum um hugsanlega staðsetningu nýs kirkjugarðar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða hugmynd um staðsetningu nýs Kirkjugarðar. Nefndin mælist til þess að skipulagsfulltrúi vinni minnisblað varðandi verkefni og leggi fyrir fund bæjarstjórnar. Mælist nefndin til þess við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að boða til fundar með Flóahreppi um framlagðar hugmyndir og hugsanlega skilgreiningu svæðisins innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember er lagt fram.
Svar

Minnisblað skipulagsfulltrúa er lagt fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og í framhaldinu funda með sóknarnefnd Selfosskirkju um mögulegar tillögur að staðsetningu. Samþykkt