María Friðmey Jónsdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:
Ungmennaráð Árborgar leggur til að Sveitarfélagið Árborg verði barnvænt sveitarfélag.
Barnvæn sveitarfélög er verkefni hjá Unicef sem styður sveitarfélög við að innleiða lög um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi.
Það myndi hafa jákvæð áhrif á samfélagið og við teljum að barnvænt sveitarfélag gæti stuðlað að því að börn geti tekið virkan þátt í samfélaginu og starfsemi innan sveitarfélagsins. Verkefnið leggur mikla áherslu á að ungmenni sveitarfélagsins fái að taka þátt í ákvörðunum sem varða líf þeirra og samfélag sem styrkir lýðræðisvitund og þátttöku ungs fólks. Samstarf við UNICEF sýnir að sveitarfélagið tekur ábyrgð á stöðu barna og vill vera í fararbroddi í málefnum barna og mannréttinda sem styrkir og bætir jákvæða ímynd sveitarfélagsins út á við. Samstarf við UNICEF þýðir einnig að þau styðja við stefnumótun og aðgerðir sem byggja á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sveitarfélagið fær þannig tól og stuðning til að skapa öruggara, sanngjarna og barnvænna samfélag. UNICEF á Íslandi veitir fræðslu, ráðgjöf og verkfæri til að hjálpa sveitarfélögum að ná markmiðum sínum, bæði starfsfólki og kjörnum fulltrúum.
Barnvænt sveitarfélag hjálpar sveitarfélaginu að greina veikleika og styrkleika í þjónustu við börn og leiðir til markvissara ákvarðanataka og betri nýtingar á fjármagni. Þegar sveitarfélög leggja áherslu á börn og ungmenni eykur á lífsgæði, félagslega samheldni og dregur úr félagslegum vandamálum til lengra tíma.
Við í Ungmennaráðinu hvetjum bæjarstjórn eindregið til að samþykkja þessa tillögu og gera Árborg að fyrirmynd og leiðandi sveitarfélagi sem sýnir í verki framtakssemi, framsýni og metnað til jákvæðra breytinga.
Umræður um 1.-6. dagskrárlið fara fram undir þessum dagskrárlið.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Bragi Bjarnason, - D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista, Guðrún Birna Kjartansdóttir, ungmennaráði, Elín Eyrún Herbertsdóttir, ungmennaráði, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Matthías Bjarnason, B-lista og María Friðmey Jónsdóttir, ungmennaráði, taka til máls.
Brynhildur Jónsdóttir, varaforseti, tekur við stjórn fundarins kl. 17:13.
Kjartan Björnsson, D-lista, tekur til máls.
Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar, tekur á ný við stjórn fundarins kl. 17:20.
Sigurður Vídalín Guðmundsson, S-lista, tekur til máls.
Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar og velferðarnefndar.
Gert er hlé á fundinum kl. 17:30. Fundarhlé lokið kl. 17:38.