Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 65
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá UNGSÁ um endurbætur o.fl. vegna leikvalla í Árborg.
Svar

Rannveig Helga Kjartansdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráðið fór nýverið í vettvangsferð til að skoða leikvelli í sveitarfélaginu og meta ástand þeirra. Markmiðið var að fá heildaryfirsýn yfir aðstöðu barna og ungmenna og greina hvar helst væri þörf á endurbótum eða viðbótum við leiktæki.

Við komumst að því að sumir leikvellir eru í mjög góðu ástandi, á meðan aðrir eru orðnir gamlir og þarfnast endurnýjunar. Hér fyrir neðan er stutt yfirlit yfir helstu athuganir:

- Leikvellir sem eru í góðu standi og þurfa ekki frekari endurbætur á leiktækjum eru í Álalæk, Löngumýri, Dælengi, Miðtúni, leikvöllurinn inn í grundarhverfinu og síðan á milli Hólatjarnar og Gráhellu.
- Leikvellir sem þarfnast mikilla endurbóta, þar sem fá eða gömul leiktæki eru til staðar, eru meðal annars við Miðengi, Fossveg og fyrir aftan Rauðholt. Þar mætti bæta við nýjum leiktækjum, fjölga rólum og setja upp nýja kastala eða klifurgrindur til að gera svæðin meira aðlaðandi fyrir börn.
- Á Aparóló við Hólana er góð aðstaða til hreyfingar, en vantar fjölbreytni í leiktækjum eftir að kastalinn var fjarlægður.

Við fórum einnig yfir stöðuna á leikvöllum á Stokkseyri og Eyrarbakka. Þar er staðan svipuð og á Selfossi, sum svæði bjóða upp á ágæta aðstöðu, en víða er þörf á uppfærslum og fjölbreyttari leiktækjum.

- Á Stokkseyri eru leikvellirnir í ágætu ástandi en mætti vel lífga upp á þá með nýjum leiktækjum og skemmtilegri umgjörð.
- Á Eyrarbakka er skólalóðin hins vegar frekar óspennandi, þar sem hún samanstendur aðallega af fótboltavelli og körfuboltavelli. Annar leikvöllur í þorpinu er til staðar en þar eru fá og fremur óspennandi leiktæki, þar mætti bæta við til að gera svæðið meira aðlaðandi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur.

Það má því segja að margir leikvellir í Árborg þarfnist endurnýjunar, viðhalds eða fjölgunar leiktækja til að verða áhugaverðari og aðgengilegri fyrir börn á öllum aldri.

Ungmennaráð Árborgar leggur því til að bæjarstjórn taki til endurskoðunar ástand og búnað leikvalla sveitarfélagsins með það að markmiði að bæta aðstöðu og fjölbreytni.
Við leggjum til að:
- Gerð verði heildarskoðun á öllum leikvöllum sveitarfélagsins, þar á meðal á Stokkseyri og Eyrarbakka.
- Forgangsraðað verði endurbótum eftir þörf og öryggismati.
- Bætt verði við fjölbreyttum leiktækjum þar sem vantar, s.s. rólum, kastölum, snúningstækjum og klifurgrindum.
- Aðgengi, lýsing og snyrtimennska á leiksvæðum verði bætt til að gera þau aðlaðandi og örugg.

Árborg er stórt og ört vaxandi sveitarfélag og mikilvægt er að öll börn hafi aðgang að öruggum, hvetjandi og fjölbreyttum leiksvæðum, óháð því hvar þau búa. Með því stuðlum við að aukinni útiveru, hreyfingu, félagsfærni og vellíðan barna og ungmenna í sveitarfélaginu.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til eigna- og veitunefndar.