Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Axel Sigurðsson, Á-lista.
Ársreikningur 2025 er borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða með 11 atkvæðum.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaðir bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að mikilvægt sé að greina ársreikning Sveitarfélagsins Árborgar 2025 af yfirvegun og horfa til þeirra þátta sem raunverulega skýra bætta rekstrarniðurstöðu ársins.
Þrátt fyrir að rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins sé betri en áætlanir gerðu ráð fyrir liggur fyrir að meginskýringin er ekki afgerandi breyting á rekstri heldur verulega hærri tekjur en gert var ráð fyrir. Rekstrartekjur sveitarfélagsins jukust um rúmar 1.700 milljónir króna umfram áætlun, á meðan rekstrargjöld fóru einnig umtalsvert fram úr fjárhagsáætlun.
Þessi tekjuaukning skýrist að stórum hluta af:
- hærri skatttekjum sem nemur um 500 millj. Króna
- auknum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem nemur um 500 millj. króna
- auknum framlögum vegna SIS-mats barna sem greidd eru úr Jöfnunarsjóði sem nema um 580 milljónum króna.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar telja því mikilvægt að halda því til haga að um tímabundna og að hluta til ófyrirséða tekjuaukningu er að ræða, fremur en varanlegan rekstrarviðsnúning. Sveitarfélagið getur ekki byggt framtíðarfjármál sín á einskiptisáhrifum eða síhækkandi álögum á íbúa og fyrirtæki.
Í sístækkandi sveitarfélagi er ljóst að skulda- og vaxtabyrði verður áfram áskorun. Samkvæmt fjárhagsáætlun er skuldahlutfall sveitarfélagsins enn nokkuð hátt og vaxtagjöld nema áfram verulegum fjárhæðum á ári hverju.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja undirstrika að nauðsynlegt er á næstu árum að ráðast í markvissar umbætur í rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að:
- bæta rekstrarhagkvæmni,
- nýta betur stafrænar lausnir og tæknilega innviði,
- lækka álögur á íbúa og fyrirtæki,
- og tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma.
Árborg er öflugt og vaxandi samfélag með mikla möguleika. Það er hins vegar ábyrgð sveitarstjórnar að tryggja að sá vöxtur byggist á traustum rekstri, gagnsæi, vandaðri áætlanagerð á öllum sviðum og sanngjörnum álögum á íbúa og fyrirtækja í sveitarfélaginu.
Undirrituð vilja færa starfsfólki sveitarfélagsins sem kom að vinnu við ársreikninginn sínar bestu þakkir fyrir þeirra mikilsverða vinnuframlag við ársreikninginn.
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista"
Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
Bragi Bjarnason, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Niðurstaða ársreiknings sveitarfélagsins er mjög ánægjuleg og vilja bæjarfulltrúar D- og Á lista þakka bæjarfulltrúum, starfsmönnum og íbúum sem hafa gert það mögulegt að skila jákvæðri niðurstöðu ársreiknings annað árið í röð, og núna með um 1,5 milljarða rekstrarafgangi.
Niðurstaðan staðfestir að aðgerðir undanfarinna ára til hagræðingar, sala eigna, tekjuaukning og skýr forgangsröðun eru að skila árangri. Rekstur sveitarfélagsins verður sterkari og m.a. náð að skapa svigrúm til lækkunar álaga og gjalda strax á þessu ári.
Meirihluti bæjarstjórnar fagnar niðurstöðunni og Sveitarfélagið Árborg sé á réttri leið. Nú reynir á að sýna áframhaldandi ábyrgð í rekstri, standast áætlanir og gera A-hluta sveitarfélagsins sjálfbæran á næstu árum. Með þeirri vinnu tryggjum við að sveitarfélagið lendi aldrei aftur í þeirri erfiðu stöðu sem blasti við okkur árið 2022.
Stefna og markmið bæjarstjórnar Árborgar var og er að takast á við rekstur sveitarfélagsins með ábyrgum hætti. Við vitum að margar ákvarðanir sl. ár hafa verið erfiðar og sársaukafullar íbúum, fyrirtækjum og starfsfólki sveitarfélagsins en þær hafa skilað tilætluðum árangri, og skapað aðstæður til lækkunar annarra álaga til framtíðar, líkt og fasteignagjalda. Því íbúar eiga alltaf að njóta ávinningsins. Við í meirihluta bæjarstjórnar erum staðráðin í að halda áfram á þessari braut ábyrgðar og árangurs í þágu íbúa sveitarfélagsins.
Axel Sigurðsson, Á-lista
Bragi Bjarnason, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista"