Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Fossvélar ehf. um endurnýjun á starfsleyfi fyrir bifreiða- og vélaverkstæði ásamt færanlegri starfsemi á steinmölun og framleiðslu á ofaníburð að Hellismýri 7, fnr. F2306448.
Svar
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis. Samþykkt