Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 57
Annað
Fyrirspurn
Þar sem mótatkvæði kom fram á 124. fundi bæjarráðs við afgreiðslu á úthlutunar- og útboðsskilmálum fyrir íbúðalóðir við Hjalldæl á Eyrarbakka er tillagan lögð fram til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að auglýst verði eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði við Hjalladæl á Eyrarbakka. Um opið útboð verður að ræða sem auglýst verður á vef sveitarfélagsins og útboðsvefurinn nýttur. Tilboðum skal skilað innan auglýsts skilafrests. Bæjarstjóra er veitt heimild til að taka hæsta tilboði sem berst í byggingarrétt á umræddum lóðum að því gefnu að það nái lágmarksverði. Jafnframt er bæjarstjóra veitt heimild til skrifa undir skilyrt veðleyfi vegna fjármögnunar tilboðsgjafa á gatnagerðar- og byggingarréttargjöldum.
Svar

Gert er hlé á fundinum kl. 18:35. Fundarhlé lokið kl. 18:45.

Til máls tóku Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Bragi Bjarnason, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, leggur fram svohljóðandi breytingartillögu sem er undirrituð af Arnari Frey Ólafssyni, B-lista, Ellý Tómasdóttur, B-lista, Örnu Ír Gunnarsdóttur, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundssyni, S-lista og Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista:
"Við leggjum til að allar þær lóðir sem deiliskipulagðar hafa verið við Hjalladæl á Eyrarbakka verði boðnar út í heild sinni í stað þeirra sem þriggja sem lagt er til að verði boðnar út í núverandi tillögu."

Breytingartillagan er borin upp til atkvæða og felld með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista og einu atkvæði bæjarfulltrúa Á-lista, með tillögunni greiddu alls 5 atkvæði, 2 bæjarfulltrúar B-lista, 2 bæjarfulltrúar S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir bæjarfulltrúi D-lista.

Arna Ír Gunnarsdóttir leggur fram eftirfarandi bókun, f.h. þeirra sem lögðu fram breytingartillöguna, vegna atkvæðagreiðslu um breytingartillöguna: "Undirrituð harma það metnaðarleysi sem meirihlutinn sýnir með því að samþykkja ekki tillögu um að bjóða út allar þær lóðir sem deiliskipulagðar hafa verið við Hjalladæl, þ.e. að bjóða út deiliskipulagða svæðið út sem eina heild, eins og rætt hefur verið innan bæjarstjórnarinnar á kjörtímabilinu."

Tillagn er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum 5 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista og einu atkvæði bæjarfulltrúa Á-lista, 2 bæjarfulltrúar B-lista, 2 bæjarfulltrúar S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir bæjarfulltrúi D-lista sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Gert er hlé á fundinum kl. 19:00. Fundarhlé lokið kl. 19:14.

Bragi Bjarnason, D-lista, leggur fram svohljóðandi bókun sem er undirrituð af Braga Bjarnasyni, D-lista, Álfheiði Eymarsdóttur, Á-lista, Kjartani Björnssyni, D-lista, SVein Ægi Birgissyni, D-lista, Helgu Lind Pálsdóttur, D-lista og Brynhildi Jónsdóttur, D-lista:
"Meirihluti bæjarstjórnar er ósammála afstöðu minnihluta til málsins. Þegar hafa verið boðnar út einbýlishúsalóðir á Eyrarbakka. Útboðið núna gefur kost á rað- og parhúsalóðum sem beðið hefur verið eftir. Þegar hafa orðið tafir á málinu vegna mótatkvæðis Arnars Freys Ólafssonar, fulltrúa B-lista í bæjarráði þann 10.apríl sl. Telur því meirihluti bæjarstjórnar mikilvægt að tefja málið ekki enn frekar og koma þessum lóðum til úthlutunar. Í framhaldi verður síðan hægt að bjóða út næsta áfanga við Hjalladæl sem býður upp á bæði einbýlis-, par- og raðhúsalóðir. Meirihluti bæjarstjórnar tekur vel í þá hugmynd að bjóða seinni áfanga við Hjalladæl í heildarútboði."