Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 60
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslu málsins var frestað á 57. fundi bæjarstjórnar.
Tillaga frá 43. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 23. apríl, liður 2.
Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja. Samgöngustofa óskar eftir umsögn Sveitarfélagsins Árborgar, skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 65/2015 um ökutækjaleigur, vegna umsóknar Kodiak Travel ehf, um geymslustað ökutækja að Eyjaseli 12 á Stokkseyri. Sótt er um að leigja út eitt ökutæki. Í aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 kemur m.a. eftirfarandi fram um stefnu byggðar á Eyrarbakka og Stokkseyri: Að heimild sé fyrir minniháttar atvinnustarfsemi innan íbúðarbyggðar svo sem gistiheimili, ferðaþjónustu, minni verslanir og menningartengda starfsemi, til að efla fjölbreytni í atvinnulífi. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls. Nefndin gerir þó fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, og skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Eyjaseli 11 og Eyrarbraut 14 og 16.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls þó með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, og skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Eyjaseli 11 og Eyrarbraut 14 og 16.
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á 57. fundi þar til niðurstaða grenndarkynningar lægi fyrir.
Bókun 46. fundar skipulagsnefndar frá 11. júní sl. liður 2.
Eyjasel 12 - Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja.
Umsagnarbeiðni frá Samgöngustofu um geymslustað ökutækja fyrir Eyjasel 5 á Stokkseyri lögð fram eftir grenndarkynningu. Sótt er um að leigja út eitt ökutæki. Grenndarkynning fór fram dagana 25. apríl til 26. maí 2025 og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Árborgar veitir jákvæða umsögn við umsagnarbeiðni. Farið hefur fram grenndarkynning, engar athugasemdir bárust.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls.
Svar

Til máls tekur Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að veita jákvæða umsögn við umsagnarbeiðni Samgöngustofu.

825 Stokkseyri
Landnúmer: 165598 → skrá.is
Hnitnúmer: 10052989
Síðasta markaðsverð
64.000.000 kr.
Einbýli · 143 m² · 01.07.2024
Kaupskrá 1 eign
64.000.000 kr. 01.07.2024
Einbýli · 143 m² · 3 herb. · bygg. 1973 · HMS