Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 144
Annað
Fyrirspurn
Davíð Árnason hönnunarstjóri f.h. Hlyns Arnórssonar sækir um leyfi til að byggja við bílskúr 24,4 m2 og breyta notkun úr bílskúr í íbúð. Einnig er tilkynnt um smáhýsi 14,4 m2. Stærð íbúðar verður 77,1 m2 og 215 m3. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 143 og var því hafnað þar sem að umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum. Davíð Árnason hönnunarstjóri hefur lagt inn nýjan aðaluppdrátt af viðbyggingu og samþykki nágranna fyrir stækkuninni.
Svar

Málið tengist máli nr. 2409248 þar sem gerðar voru athugasemdir við óleyfisframkvæmdir, krafist greinargerðar og að viðlögðum dagsektum. Umsókn þessi er viðbrögð við athugasemdunum. Deiliskipulag liggur ekki fyrir. Erindinu er hafnað þar sem ekki er hægt að samþykkja nýjan matshluta (02) á lóð ásamt því að umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum.

Umsókn um breytta notkun á bílskúr ásamt viðbyggingu er hafnað.Hafnað