Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 155
Annað
Fyrirspurn
Þórey Edda Elísdóttir hönnunarstjóri fyrir hönd Jóns Helga Daníelssonar sækir um leyfi til að byggja skemmu. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 143 en var frestað vegna ófullnægjandi gagna. Helstu stærðir eru; 112m² & 488,5m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt