Lóðarhafi kom til fundar við byggingarfulltrúa 26.09.2024 þar sem farið var yfir farið var yfir ábendingar nágranna og fyrri samskipti lóðarhafa og byggingarfulltrúa. Í tölvupósti byggingarfulltrúa til lóðarhafa 20.09.2024 segir m.a:
"Byggingarfulltrúi fer hér með fram á að gerð verði fullnægjandi grein fyrir framkvæmdinni skv. ofangreindu.
Ef ekki verði gerðar viðeigandi ráðstafanir fyrir 11.11.2024 mun byggingarfulltrúi í framhaldinu beita aðgerðum sem m.a eru tilgreindar í gr 2.9.2. í byggingarreglugerð 112/2012, þ.e. dagsektum sem geta numið allt að 500.000 kr."
Með tölvupósti 10.11.2024 segist lóðarhafi vera að vinna í að fjarlægja bílana af lóðinni. Einnig segist hann hafa ráðið arkitekt til að gera nýjan aðaluppdrátt ásamt skráningartöflu.
Þá biður lóðarhafi um aukinn frest fram á næsta sumar varðandi aðra þætti en bílana.
Afgreiðslufundur ítrekar fyrri kröfur sem eru:
1.Senda okkur aðaluppdrátt sem sýnir innra skipulag hússins eins og það er í dag ásamt fullgildri skráningartöflu.
2.Fjarlægja óskráð ökutæki af lóðinni hið allra fyrsta.
3.Gera grein fyrir áformum um lok framkvæmda við hús og á lóð.
4.Gera grein fyrir hvar 16 íbúar komast fyrir í húsinu m.v. núverandi notkun.
Eiganda er gefin frestur til 27.11.2024 til þess að bregðast við athugasemdum, frá þeim degi verða lagðar dagsektir kr. 10.000.Samþykkt