Hjarðarholt 13
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 145
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúa hafa borist ábendingar um framkvæmdir á lóðinni Hjarðarholt 13. Við skoðun kom í ljós að lóðarhafi hafi hafist handa við viðbyggingu við bílskúr án þess að hafa sótt um leyfi eða tilkynnt framkvæmdina. Húseigandi fékk hönnuð til þess að teikna upp viðbygginguna og var henni hafnað á afgreiðslufundi númer 144 þar sem ekki er hægt að samþykkja nýjan matshluta (02) á lóð ásamt því að umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum.
Svar

Byggingarfulltrúi sendi lóðarhafa bréf dags. 17.09.2024 þar sem segir m.a: Byggingarfulltrúi fer hér með fram á að gerð verði fullnægjandi grein fyrir framkvæmdinni. Ef ekki verði gerðar viðeigandi ráðstafanir fyrir 16.10.2024 mun byggingarfulltrúi í framhaldinu beita aðgerðum sem m.a eru tilgreindar í gr 2.9.2. í byggingarreglugerð 112/2012, þ.e. dagsektum sem geta numið allt að 500.000 kr. Lóðarhafi hefur ráðið hönnuð til að teikna upp áformin og skila inn umsögn til byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúi samþykkti þar af leiðandi aukinn frest til 20.11.2024 og var málinu frestað á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 143 þar sem að gögnin voru ófullnægjandi er varðar kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum. Nýjum teikningum var skilað inn og var erindið tekið fyrir á afgreiðslufundi 144 þar sem að því var hafnað.

Byggingarfulltrúi ákveður að leggja dagsektir á lóðarhafa 10.000kr frá 9.janúar 2025.
Þar til að viðbygging verður fjarlægð.Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 162282 → skrá.is
Hnitnúmer: 10059492