Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 127
Annað
Fyrirspurn
Eik Fasteignafélag hf. sækir um leyfi til niðurrifs hluta hússins að Eyraveg 42. Um er að ræða gróðurhús þar sem verlsun Blómavals var til húsa. Efni verður að mestu endurnýtt.
Svar

Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.
- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Samþykkt