Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 128
Annað
Fyrirspurn
Ragnar Magnússon hönnuður fyrir hönd Funaberg ehf sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 124 og var því hafnað þar sem að húsið var ekki í samræmi við deiliskipulag. Helstu stærðir eru; 3.635,6 m² og 10.947 m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt