Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 123
Annað
Fyrirspurn
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún Þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja óupphitað bílastæðahús þar sem gert ráð fyrir 219 bílastæðum. Var áður á afgreiðslufundi 121 þar sem að því var hafnað vegna ófullnægjandi gagna. Helstu stærðir; 6387,1 m².
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir eldvarnareftirlits Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt