Tjaldhólar 46
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 134
Annað
‹ 9
10
Fyrirspurn
Málið var áður á dagskrá 133. fundar. Byggingarfulltrúa hafa borist athugasemdir vegna smáhýsis á lóð nr. 46 sem ekki er sett upp í samræmi við gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð. Byggingarfulltrúi sendi eiganda nr. 46 bréf dags. 17.11.2023 og aftur 27.05.2024 þar sem gefinn er frestur til andmæla til 08.06.2024 og upplýst að ákvörðun um hvort dagsektir verði lagðar á verði tekin þann 12.06.2024. Á fundinum var samþykkt í samræmi við gr. 2.9.2.í gildandi byggingarreglugerð að leggja á dagsektir kr. 30.000,- frá og með birtingu.
Svar

Aðilar hafa skiptst á bréfum og verið í samskiptum við byggingarfulltrúa. Ekki er útlit fyrir að þau nái samkomulagi um staðsetningu smáhýsins.
Vegna alvarlegra veikinda biðja íbúar í nr. 46 um ótímabundinn frest á aðgerðum (dagsektum).
Byggingarfulltrúi ítrekar samþykkt frá fyrri fundi dags 12.06.2024: Eigendur Tjaldhóla 46 fjarlægi smáhýsi fyrir 15. júlí 2024 ella verði í samræmi við gr. 2.9.2.í gildandi byggingarreglugerð lagðar á dagsektir kr. 30.000,- frá og með birtingu.Samþykkt