Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 116
Annað
Fyrirspurn
Ívar Hauksson hönnuður fyrir hönd Hákon Val Haraldssonar sækir um leyfi til að byggja bílskúr. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 115, og var vísað til skipulagsnefndar og þaðan í grenndarkynningu. Helstu stærðir eru; 59,6 m² og 203,8 m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grendarkynningar. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt