Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 115
Annað
Fyrirspurn
Guðni Sigurbjörn Sigurðsson hönnuður fyrir hönd Harðar B. Hjartarsonar sækir um leyfi til að byggja úthús. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi 114 og var synjað þar sem framlögð gögn voru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Helstu stærðir eru; 30,8 m² og 118,2 m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt