Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 116
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Valgerðar Pálsdóttur sækir um leyfi til að rífa eldri bílskúr og byggja nýjan. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 114. Helstu stærðir 61,7m² & 209,8m³
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Erindið hefur verið grenndarkynnt og engar athugasemdir bárust. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt