Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 125
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Fagralands ehf. sækir um leyfi til að byggja 5 íbúða raðhús. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi númer 113 og var þá frestað. Helstu stærðir eru; 560,5m2 og 2040,2m3
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemd eldvarnareftirlits Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt