Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 113
Annað
Fyrirspurn
Ægir Sævarsson sækir um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði, málið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 112 og var því vísað til umsagnar hjá mannvirkja- og umhverfissviði. Helstu stærðir eru; 151,0 m² og 695,5m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag og hefur fengið jákvæða umsögn frá mannvirkja- og umhverfissviði.
Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur er lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt