Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 158
Annað
Fyrirspurn
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Fossver ehf. skilar inn uppfærðum aðaluppdráttum. Helstu stærðir eru 2.443,3m² og 8.292,3m³. Helstu breytingar eru; í kjallara er gert ráð fyrir skrifstofum í stað þjónusturýmum, 2.hæð breytist úr íbúðum yfir í skrifstofur. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 157 þar sem því var hafnað vegna þess að það var ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: Aðal- og séruppdrættir ásamt afstöðumynd af vinnusvæði sem tekur meðal annars á aðkomu og öryggismálum á verktíma sem eru undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt