Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 108
Annað
Fyrirspurn
Bjarki Guðmundsson hönnunarstjóri f.h. Bergrisans bs sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða kjarna fyrir þjónustuíbúðir. Helstu stærðir 514,2 m² og 1.440,0 m³.
Svar

Málið var áður fyrir fundi 105 og þá samþykkt að gefa út takmarkað byggingarleyfi til jarðvinnu með fyrirvara. Fyrir liggja uppfærðir aðaluppdrættir.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt