Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 106
Annað
Fyrirspurn
Ögmundur Skarphéðinsson hönnuður fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar sækir um leyfi til að byggja 2. áfanga Stekkjarskóla. Helstu stærðir 3.614,1 m2 og 15.486,0 m3.
Svar

Málið var áður á dagskrá 103. fundar.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Samþykkt