Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 20
Annað
Fyrirspurn
Bæjarráð óskaði eftir á 12. fundi að fá nánari greinagerð og vinnureglur frá frístunda- og menningarnefnd um val á hvunndagshetju Árborgar áður en málið yrði tekið til afgreiðslu.
Tillaga frá 5. fundi frístunda- og menningarnefndar, frá 21. nóvember, liður 2. Sett hafði verið saman stutt greinargerð og helstu verklagsreglur við val á hvunndagshetju Árborgar. Gunnar E. Sigurbjörnsson deildarstjóri fór yfir drögin. Nefndin samþykkti þessar verklagsreglur eftir að búið var að laga orðalag. Verklagsreglunum svo vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Svar

Bæjarráð samþykkir drög að verklagsreglum og felur bæjarstjóra frekari útfærslu í samræmi við umræður á fundinum.