Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 151
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 48. fundi eigna- og veitunefndar frá 18. nóvember liður 3.
Nefndin samþykkir að hefja undirbúning að hönnun og framkvæmd á því að koma fyrir stálbogaundirgöngum undir vegstæði Hringvegar í Hellismýri vestan Ölfusár. Undirgöngin eru hugsuð sem tenging að fyrirhuguðu tjaldsvæði sunnan Hringvegar og til norðurs í átt að Hellisskógi. Sviðsstjóra falið að halda samtali áfram við hlutaðeigandi aðila.
Lagt er til að málið verði tekið fyrir í bæjarráði til samþykktar.
Svar

Bæjarráð samþykkir að fela sviðstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að halda samtali áfram við hlutaðeigandi aðila og að hefja undirbúning að hönnun og framkvæmd á því að koma fyrir stálbogaundirgöngum undir vegstæði Hringvegar í Hellismýri vestan Ölfusár. Samþykkt