Eigendur hússins hafa frá árinu 2017 sótt um ýmsar breytingar á húsinu sem flestar snúa að breyttri notkun. Mismikil samstaða hefur verið meðal eigenda um einstakar breytingar. Á fundi 85 var samþykkt ósk um að fjölga eignarhlutum á þriðju hæð úr einum í tvo og samþykkt ósk um breytta notkun 2. og 3. hæðar úr skrifstofum í íbúðir. Byggingarfulltrúi afturkallaði þessa samþykkt 13.07.2021 þar sem hann taldi að upplýsingar um samþykki meðeigenda hafi ekki verið fullnægjandi. Ákvörðun um afturköllun var kærð til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Niðurstaða Úrskurðarnefndar "Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Árborgar frá 13. júlí 2021 að því er varðar afturköllun fyrri ákvörðunar hans frá 28. apríl s.á. um að samþykkja byggingarleyfi fyrir breyttri notkun séreignarhluta kærenda í fjöleignarhúsinu að Austurvegi 38. Að öðru leyti stendur ákvörðunin óröskuð."
Með samkomulagi eigenda frá 23.04.2024 er fallist á fjölgun eignarhluta á 3. hæð.
Byggingarfulltrúi ítrekar samþykkt frá fundi 85 varðandi fjölgun eignarhluta og breytta notkun með fyrirvara um að uppdráttur sé leiðréttur í samræmi vð athugasemdir eldvarnareftirlits um fjölda reykskynjara og handslökkvitækja.
Byggingarfulltrúi víkur frá kröfu um lyftu með tilvísun í eftirfarandi í tölulið 5 í gr. 6.4.12 í byggingarreglugerð: ,,Einnig er heimilt að víkja frá kröfu um lyftu í þriggja hæða íbúðarhúsi með fjórum íbúðum eða færri í þegar byggðu hverfi".
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir Byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu og greinargerð er varðar breytingu á húsnæðinu.Samþykkt