Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 9
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 6. fundi félagsmálanefndar frá 8. nóvember, liður 6. Tillaga að heildarendurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð. Tillaga að breytingu 30. gr laga um reglna um fjárhagsaðstoð Sveitarfélagsins Árborgar.
Félagsmálanefnd samþykkti samhljóða breytingar á 30. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Sveitarfélagsins Árborga.
Lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á 30. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Sveitarfélagsins Árborgar.
Svar

Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Helga Lind Pálsdóttir, D-lista og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista taka til máls.

Brynhildur Jónsdóttir, varaforseti bæjarstjórnar tekur við stjórn fundarins.

Kjartan Björnsson, D-lista tekur til máls.

Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar tekur aftur við stjórn fundarins.

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.