Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 2. júní sl., liður 2. Deiliskipulagsbreyting - Þykkvaflöt 3-9. Tillagan var auglýst frá 14. apríl 2021 með athugasemdafresti til 26. maí 2021. Athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar auk umsagna frá lögboðnum umsagnaraðilum. Farið yfir innkomnar athugasemdir og umsagnir. Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingu yrði hafnað m.t.t. innkominna athugasemda.
Svar
Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista taka til máls. Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.