Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 67
Annað
Fyrirspurn
Erindinu var frestað á 58. fundi skipulags- og byggingarnefndar og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna. Skipulagsfulltrúi hefur verið í samskiptum við umsækjanda og fyrir fundinum liggur tillaga að staðsetningu bílskúrs innan lóðar.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir og kynnir sér gögn umsækjanda um tillögu á staðsetningu bílskúrs. Að mati nefndarinnar kemur sú staðsetning sem umsækjandi leggur til ekki til greina vegna nálægðar húss við Strandgötu.

Hvað varðar grænt svæði norðan lóðar þá er ekki gert ráð fyrir því í endurskoðun aðalskipulags Árborgar að landnotkun svæðisins verði breytt frá því sem nú er.

Nefndin samþykkir að hafna erindinu samhljóða.

825 Stokkseyri
Landnúmer: 165782 → skrá.is
Hnitnúmer: 10053747
Deiliskipulag
Deiliskipulag milli Sandgerðis, Hásteinsvegar og Strandgötu, Stokkseyri
Samþykkt 25.05.2009 · Deiliskipulag. Nýtt DSK