Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 70
Annað
Fyrirspurn
Deiliskipulagstillaga fyrir Nýjabæ var auglýst frá 24. febrúar 2021, með athugasemdafresti til og með 7. apríl 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar, en umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum. Á 66. fundi skipulags- og byggingarnefndar var farið yfir innkomnar umsagnir og skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingum á tillögunni m.t.t þeirra.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan með óverulegum breytingum eftir auglýsingu, verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.