Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um viðhald gatna í Þingholtsstræti og nágrenni
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 80
2. september, 2020
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Í gangi hafa verið framkvæmdir í Þingholtsstræti og nágrenni. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um verkefnastöðu á málningu gatna/bílastæða í miðbænum t.d. við Þingholtsstræti, og að minnsta kosti hluta Bókhlöðustígs og Skálholtsstígs. Hvenær hófst verkið og hvenær voru áætluð verklok?  Hver er staða viðhalds, vatnsræsingar og viðgerðar í Þingholtsstrætinu og næsta nágrennis?
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis - og skipulagssviðs, Skrifstofu framkvæmda og viðhalds.