Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn,
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 73
20. maí, 2020
Frestað
‹ 28. fundarliður
29. fundarliður
Fyrirspurn
Fyrirspurn um Nauthólsveg 100/Braggann,. Verið er að sækja um leyfi til að breyta notkun, skráðri stærð og útliti Náðhússins á Nauthólsvegi 100/Bragginn. Reykjavíkurborg á byggingarnar á Nauthólsvegi 100 og búið er að gera upp Braggann fyrir um hálfan milljarð. Búið er að skrifa 47 milljónir á náðhúsið en það stendur enn fokhelt. 1. Hver borgar þessar breytingar og hver er fyrirhuguð notkun á húsinu? 2. Ef HR borgar breytingarnar stenst það þá framleigusamning Reykjavíkur til HR? 3. Hvað er áætlað að þessar breytingar kosti tæmandi talið? 4. Hvað borgar HR í leigu fyrir allar húsaþyrpingarnar á mánuði til Reykjavíkur? 
Svar

Frestað.

Komur og brottfarir
  • - Kl. 12:25 víkur Eyþór Laxdal Arnalds af fundi.
  • - Kl. 12:29 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi.
  • - Kl. 12:40 víkur Kristín Soffía Jónsdóttir af fundi.