Kvosin, Landsímareitur, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 80
2. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 13. maí 2020 ásamt greinargerð dags. 13. maí 2020 um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, Landsímareits sem felst í að heimilt verði að vera með gististað á 3 og 4 hæð hússins að Thorvaldsensstræti 2, stækka og breyta nýtingu á kjallara hússins að Thorvaldsensstræti 6 ásamt því að breyta jarðhæð í eitt alrými fyrir viðburði og veitingarekstur, vera með gististað eða hótelíbúðir á efri hæðum húsanna að Aðalstræti 7 og Vallarstræti 4 og gera sólstofu fyrir setustofu og bar á 5. hæð á þaksvölum Thorvaldsenstrætis 5. Einnig er lagt fram minnisblað Icelandair Group f.h. Icelandair Hotels og Lindarvatns dags. 17. mars 2020 og bréf Eflu varðandi hljóðeinangrun NASA salar dags. 3. júlí 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.08.2020 er samþykkt

Gestir
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.