Urðarstígur 9, kæra 17/2020, umsögn, úrskuður
Urðarstígur 9 (01.186.5)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 76
10. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2020, ásamt kæru dags. 24. febrúar 2020 þar sem kærðar eru ákvarðanir byggingarfulltrúa dags. 24. og 31. janúar 2020 og 10. febrúar 2020 um byggingarleyfisskyldu og stöðvun framkvæmda að Urðarstíg 9. Einnig er lögð fram umsögn Skrifstofu sviðsstjóra dags. 27. febrúar 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 29. maí 2020. Úrskurðarorð: Fyrirspurn um byggingarleyfisskyldu framkvæmda við Urðarstíg 9 er vísað frá úrskurðarnefndinni. Ákvörðun byggingarfulltrúa frá 24. janúar 2020 um stöðvun framkvæmda og að sótt verði um byggingarleyfi er felld úr gildi.
101 Reykjavík
Landnúmer: 102296 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025233