Ártúnshöfði, austurhluti, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa
Ártúnshöfði (04.071)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 76
10. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulaginu "Ártúnshöfði - Eystri" vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Stiku, dags. 21. febrúar 2020. Tillagan var auglýst frá 31. mars 2020 til og með 12. maí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar: Róbert Örn Albertsson dags. 15. apríl 2020, Sölvi Sigurjónsson dags. 15. apríl 2020, Kristján Lindberg Björnsson dags. 16. apríl 2020, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir f.h. Kaffitárs ehf. dags. 17. apríl 2020, Elías Gíslason, Guðmundur Gunnlaugsson, Pétur Jónsson, Náttúrulækningastofa Matthildar, Sjúkraþjálfun Ártúnshöfða og Sveinbjörn Jakobsson dags. 29. apríl 2020, Elías Gíslason dags. 7. maí 2020, Þórður R. Magnússon dags. 11. maí 2020, Stefán S. Gunnarsson dags. 11. maí 2020, G. Sigríður Samúelsdóttir dags. 11 maí 2020, Vignir Þór Stefánsson dags. 11. maí 2020, Ingi Kári Loftsson dags. 12. maí 2020, Jón Kristinn Jónsson og Sesselja Ingólfsdóttir dags. 11. og 12. maí 2020, Ólafur Jónsson dags. 11. maí 2020, Pétur Jóhannesson dags. 12. maí 2020, Einar S. Hálfdánarson dags. 12. maí 2020, Árni Guðmundsson dags. 12. maí 2020, Sif Jónsdóttir og Björn Finnbogason dags. 12. maí 2020, Páll Fannar Einarsson dags. 12. maí 2020 og Guðrún Karlsdóttir. Að loknum athugasemdarfresti barst athugasemd frá Berglindi Gunnarsdóttur dags. 20. maí 2020 og Magnúsi Óskarssyni hrl. f.h. Vélvíkur ehf. dags. 27. maí 2020. Einnig er lögð fram umsögn íbúaráðs Grafarvogs dags. 12. maí 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2020.
Svar

Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2020. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Vísað til borgarráðs.

Bókanir og gagnbókanir
  • Sjálfstæðisflokkur
    Dregist hefur úr hömlu að koma upp búsetuúrræðum fyrir húsnæðislaust fólk sem borgin hefur ráðist í. Mikilvægt er að búsetuúrræði séu í sem mestri sátt við íbúa. Ekki er gert ráð fyrir búsetu samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Þá er óljóst hversu tímabundið þetta úrræði verði.