(fsp) reisa fjölnotabyggingu
Miðbakki, Geirsgata 11, 13 og 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn Yrki arkitekta dags. 13 maí 2020 ásamt greinargerð dags. 7. maí 2020 um mögulega uppbyggingu á lóðum nr. 11, 13 og 15 við Geirsgötu sem felur í sér að reisa fjölnotabyggingu á Miðbakkanum, samkvæmt tillögu Yrki Arkitekta dags. 21 febrúar 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Vísað til umsagnar Faxaflóahafna.